Made with Xara Web Designer
FORSÍÐA
Hér að ofan er plakat myndarinnar
fullbúið. Hönnun og vinnsla var
í höndum Ágústar Atlasonar,
þeim valinkunna myndasmiði.
Vaxandi Tungl er nú nánast fullbúin.
Forsýning um páskana í nýju
félagsheimili Bolvíkinga gekk að
óskum og undirtektir góðar.
Myndin verður síðan forsýnd í
Bæjarbíói í Hafnarfirði þann
21. október og sömu helgi sýnd
í Ísafjarðarbíói.
RÚV hefur fest kaup á Vaxandi Tungli
og verður myndin á dagskrá um jólin.
Við þetta tækifæri vilja aðstandendur
þakka öllum sem lögðu verkinu lið,
ekki sízt hinum frábæru vestfirzku
krökkum sem tóku að sér hlutverk í
myndinni.
Að lokum má geta þess að framundan
er þýðing myndarinnar og eftir það
fer hún rúnt utanlands þar sem reynt
verður að selja hana til sýninga í
sjónvörpum.
lydur@islandia.is
odinn@icelandicsaga.is
90 mín bíómynd.
Tekin upp á Vestfjörðum í apríl
og ágúst 2010.
Framleiðendur
- Í einni sæng
- Íslandssaga Suðureyri
- Klofningur Suðureyri
- Sigurður Ólafsson
Gömul kona deyr í litlu sjávarþorpi.
Eldri sonur hennar býr á staðnum
ásamt fjölskyldu, en yngri sonurinn
býr í Reykjavík með konu sinni.
Lát gömlu konunnar vekur upp átök
milli bræðranna. Óvænt þungun
flækir málin enn frekar. Kemur þá
til skjalanna yngsta dóttirin,
augasteinn ömmu sinnar.
Hún finnur fyrir nánd gömlu
konunnar, afræður að bjóða
örlögunum birginn og
berjast fyrir sínu.