FRÁ RITSTJÓRN: Engin ábyrgð er tekin á sængurfréttum þó sumar séu vissulega sannar.  Oft er skáldað í eyðurnar og einatt fært í stílinn.   Djúsí fregnir eru ávallt vel þegnar og heimildamanna gjarna getið.  Lygasögum er ekki hafnað séu þær góðar en hreinn uppspuni á ekki upp á pallborðið nema ef um tæra snilld sé að ræða.  Kvörtunum er öllum fleygt nema yfir kvikmyndamiðstöðinni.  Vona lesendur virði þessa ritstjórnarstefnu.     Kvikmyndin Vaxandi Tungl verður forsýnd í Bæjarbíói þann 21.  október fyrir vini og vandamenn og sömu helgi í Ísafjarðarbíói.  Um jólin fer hún svo í sjónvarp allra landsmanna.   Á döfinni er  svo að selja myndina til norðurlanda og jafnvel Þýskalands.  Kvikmyndafélaginu áskotnaðist á dögunum handritastyrkur  fyrir sjónavarpsþáttaröð um lækninn og tónskáldið, Sigvalda  Kaldalóns.  Áætlað er að þættirnir verði fjórir og reynt verður  að fá danska kvikmyndaframleiðendur upp í vagninn.  Gamall draumur um að gera heimildarmynd um kvótakerfið  hefur skotið upp kollinum.  Eru margir áhugasamir um gerð  slíkrar myndar sem aðgengileg verður almenningi og hafin er  fjársöfnun.      “SVIÐSLJÓSIД  Í sviðsljósinu er Jón Lýðsson en hann ku vera næst yngsta barn leikstjórans og ástarvikubarn að auki.  Er snáðinn þegar farinn að handleika myndavélar og virðist engu skipta hvoru megin linsunnar hann er.   Hann jafnhendir þrífætinum, sveiflar hljóðbómunni og rambar á krananum, allt eftir aðstæðum.  Kvikmyndafélagið gæti því eignast liðtækan gripil í framtíðinni. Made with Xara Web Designer GRÓA Á LEITI “Svokallað Stjórnlagaráð” mun verða afhjúpað í nýrri heimildarmynd um störf þess og leynimakk. Mun þar koma fram ótrúlegur undirróður og landráðstarfsemi sem og gljálífi ráðsliða og starfsfólks.   Myndin verður sýnd 25. september á RÚV og bönnuð börnum.   Klippari kvikmyndafélagsins, Íris Sveinsdóttur, hyggur á nám í   brellu- og hreyfimyndagerð í október.   Er um tveggja mánaða   námskeið að ræða og miklar væntingar í gangi.   Langþráð Lógó  mun væntanlega líta dagsins ljós í kjölfarið.