Made with Xara Web Designer Kvikmyndum fylgir tónlist og kvikmyndafélagið Í EINNI SÆNG kappkostað að vanda til verka í þeim efnum.  Meðal þeirra sem samið hafa tónlist fyrir myndir félagsins eru ásamt eigendum félagsins, Carl Johan Carlsson í hljómsveitinni Dead Sea Apple,Daníel Ágúst Haraldsson, nýdanskur, Hrólfur Vagnsson Bolvískur, Hildur Jóhannesdóttir skólastýra, Hinrik Ólafsson leikari, tvíeykið Keith Hopcroft og Siggi Björns ásamt tónskáldi hafs og fjalla, Óla POPP. Margir þekktir tónlistarmenn hafa lagt okkur lið, m.a. Rúnar Júlíusson, sá gengni rokkkóngur, Hildur Vala idolstjarna, Pétur Hjaltested, Diddi fiðla, K-vítamínið Rósmann, Helgi Björns, Dan Cassidy og Ásgeir Óskarsson. Aðstandendur félagsins hafa einnig staðið í hljómsveitarstappi og nokkur brek festust á filmu.   Hver man ekki eftir Kartöflumúsunum? Í EINNI SÆNG lydur@islandia.is iriss@snerpa.is SIGGI BJÖRNS