Made with Xara Web Designer Stofnað í Bolungarvík 2006.  Í fyrstu rúnkgrúppa en hefur í auknum mæli snúið sér að ræl og polka. Trommur:  Gestur Kolbeinn Pálmason, sérsveitarmaður. Bassi:  Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Lofbylgjunnar (Airwaves).  Spilaði rúnk með Dr. Gunna hér áður en farinn að una sér betur í jassmúsik og polka.  Kyntröll hljómsveitarinnar og vindhani. Loftgítar: Lýður Árnason, fyrrverandi yfirlæknir á Flateyri, kann lítt á hljóðfæri en syngur og dansar ásamt því að vera pólitískur sjálfviti og leiðtogi hljómsveitarinnar tæknilega. Rafgítar:  Jón Elíasson, hálfbróðir Steingríms J. Sigfússonar og þjáningarbróðir í skoðunum.  Þjappa:  Íris Sveinsdóttir, einun sinni skattadrottning í Bolungarvík og læknir.   Með næst stærstu brjóstin í hljómsveitinni. Harmonika:  Hrólfur Vagnsson, prófessor í músik, Hamborgari og Hesteyrarjarl.  Flygill:  Pétur Hjaltested, upptökumaður og fyrrum meðlimur í hljómsveitinni Procol Harum. Grjóthrun hefur gefið út einn samnefndan geisladisk og er sá illfáanlegur.   Nokkur eintök eru þó til sölu á Hesteyri. Ýtið á tengilinn hér fyrir neðan til að bera dýrðina augum. Grjóthrun er nú í hljóðveri og tveggja laga albúm undir. Pólitíkin er í forgrunni, eithvað um olnbogaskot og smá ást í lokin.  Grjóthrun fær ekki að eyðileggja Loftbylgjuna(Airwaves) í ár.                                  Grímur. lydur@islandia.is jone@internet.is